Opnunartímar 2023
Mán-fös: 9:00 - 20:30
Lau-sun: 10:00 - 20:30
Eldhúsið opið frá 11:00 - 20:00
Verið velkomin í Dalakofann á Laugum
Dalakofinn er veitingastaður og verslun, staðsett við þjóðveg 1 á Laugum í Þingeyjarsveit. Hjá okkur er opið allt árið um kring.
Við leggjum áherslu á góðan mat á sanngjörnu verði og góða þjónustu. Í veitingastaðnum finnur þú fjölbreytt úrval af spennandi réttum, meðal annars ljúffengar heimagerðar pizzur, hamborgara með reykdælsku nautakjöti, alvöru íslenska kjötsúpu og gratíneraðan plokkfisk að hætti hússins. Eftir matinn geturðu verslað allar helstu nauðsynjar í versluninni okkar í hinum enda hússins. Frá 1. maí til 15. september rekum við einnig tjaldstæði við íþróttavöll sveitarfélagsins, en hann er aðeins í nokkur hundruð metra fjarlægð frá veitingastaðnum. Kíktu við hjá okkur, við tökum vel á móti þér! |
Finndu okkur á Facebook og Instagram
|
|